Tryggðu heimilið þitt fyrir óvæntu tjóni

Fast­eigna­trygging

Það getur verið dýrt ef fasteignin þín verður fyrir tjóni, eins og vegna leka innanhús, óveðurs eða innbrots.

Með fasteignatryggingu tryggir þú fasteignina þína fyrir algengustu tjónum sem geta orðið á íbúðarhúsnæði.

Spurt og svarað

Fasteignatrygging

Hvers konar trygging er þetta?

Fasteignatrygging er samsett úr 12 tryggingum og bætir helstu tjón sem verða á íbúðarhúsnæði. Fasteignatryggingin er yfirleitt tekin til viðbótar við brunatryggingu húseigna sem er skyldutrygging.

Sækja skilmála
Hvað er tryggt?
Hvað er ekki tryggt?
Vatnstjónstrygging bætir:Vatnstjónstrygging bætir ekki:

Skemmdir af völdum vatns sem lekur skyndilega úr vatnsleiðslum innan veggja hússins.

Skemmdir af völdum vatns sem á upptök sín utan veggja hússins (sjá þó skýfalls- og asahlákutryggingu).

Skemmdir af völdum vatns sem flæðir úr hreinlætistækjum vegna mistaka eða skyndilegrar bilunar.

Skemmdir af völdum vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslislögnum.

Skemmdir af völdum leka úr ísskápum og frystikistum.

Tjón af völdum missigs frárennslislagna.

Tjón af völdum langvarandi raka eða sveppagróðurs.

Skýfalls- og asahlákutrygging bætir:Skýfalls- og asahlákutrygging bætir ekki:

Skemmdir af völdum jarðvegsvatns sem flæðir inn í húseign af völdum skyndilegrar úrhellisrigningar eða asahláku.

Skemmdir af völdum vatns sem lekur frá svölum, þakrennum eða frárennslisleiðum þeirra vegna sjávarfalla og/eða grunnvatns.

Frostsprungutrygging bætir:Frostsprungutrygging bætir ekki:

Tjón á vatnsleiðslukerfi innanhúss vegna frostsprungna ef hitakerfi hússins bilar skyndilega.

Tjón á snjóbræðslukerfum.

Snjóþungatrygging bætir:Snjóþungatrygging bætir ekki:

Skemmdir á fasteigninni ef snjór sligar þak eða veggi hennar.

Tjón af völdum snjóflóða.

Tjón sem er afleiðing byggingagalla eða ófullnægjandi viðhalds.

Fok- og óveðurstrygging bætir:Fok- og óveðurstrygging:

Skemmdir á fasteigninni af völdum óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu eða meira.

Tjón á lausamunum utanhúss.

Tjón af völdum sandfoks.

Húsaleigutrygging bætir:Húsaleigutrygging bætir ekki:

Húsaleigu sem vátryggður tapar eða verður að greiða ef flytja þarf úr húsnæði vegna tjóns.

Húsaleigu fyrir lengri tíma en 6 mánuði eftir hvern vátryggingaratburð.

Innbrotstrygging bætir:Innbrotstrygging bætir ekki:

Skemmdir á fasteigninni í kjölfar innbrots.

Tjón á póstkössum.

Glertrygging bætir:Glertrygging bætir ekki:

Skemmdir á ísettu gleri í vátryggðri fasteign ef það brotnar.

Tjón á skrautgleri og glerlistaverkum.

Tjón ef glerið rispast eða flísast upp úr því.

Tjón á völdum móðu á milli glerja.

Brot- og hrunstrygging bætir:Brot- og hrunstrygging bætir ekki:

Skemmdir á fasteigninni ef festingar af innanhússloftklæðningu eða naglfastri innréttingu gefa sig skyndilega.

Rispur eða skemmdir sem teljast ekki brot.

Skemmdir sem verða ef kvarnast eða flísast úr borðplötu.

Sótfallstrygging bætir:Sótfallstrygging bætir ekki:

Skemmdir á húseign vegna skyndilegs og óvænts sótfalls frá kynditækjum eða eldstæðum.

Tjón sem fást bætt úr brunatryggingu hús- eignarinnar.

Ábyrgðartrygging húseigenda bætir:Ábyrgðartrygging húseigenda bætir ekki:

Tjón sem húseigandi er gerður ábyrgur fyrir samkvæmt skaðabótalögum, til dæmis ef gestkomandi slasast vegna ófullnægjandi frágangs.

Tjón á munum sem húseigandi hefur að láni, til leigu eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans.

Réttaraðstoðartrygging bætir:Réttaraðstoðartrygging bætir ekki:

Málskostnað vegna ágreinings í einkamáli sem varðar þann sem tryggður er sem eiganda húseignar.

Málskostnað vegna annarrar fasteignar en þeirrar sem kemur fram á skírteininu.

Eru einhverjar takmarkanir á því sem tryggingin nær yfir?

  • Tryggingin bætir ekki tjón af völdum náttúruhamfara eða tjón sem orsakast af stríði, hryðjuverkum, mengun eða viðlíka atburðum.

Hvar gildir tryggingin?

  • Tryggingin gildir á þeim stað sem er tilgreindur í vátryggingarskírteini.

Hvaða skyldur hef ég?

  • Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.

  • Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.

  • Þér er skylt að fara eftir varúðarreglum í skilmálum, t.d. þeirri að þér beri að hreinsa frá niðurföllum við húseignir svo snjór, klaki eða óhreinindi stífli þau ekki.

Hvenær og hvernig greiði ég iðgjaldið?

Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:

  • Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.

  • Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.

  • Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.

Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?

  • Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.

Hvernig segi ég tryggingunni upp?

  • Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.

  • Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.