Starfsábyrgðartrygging sjúkrastofnana bætir líkamstjón sjúklinga, sem vátryggður ber skaðabótaábyrgð á vegna mistaka við veitingu sérfræðiþjónustu.
Hvað er tryggt? | Hvað er ekki tryggt? |
---|---|
Tryggingin greiðir bætur vegna: | Tryggingin greiðir ekki bætur vegna: |
Skaðabótakröfu á hendur vátryggðum vegna líkamstjóns sem sjúklingur verður fyrir í tengslum við meðferð á stofnuninni og kemur fram á gildistíma tryggingarinnar. | Tjóna af öðrum ástæðum en afleiðingum meðferðar hjá stofnuninni. |
Tjóna vegna meðferða sem fellur utan venjulegs starfssviðs vátryggðs. |
Tryggingin greiðir ekki bætur vegna tjóns sem lögboðin sjúklingatrygging tekur til, hvort sem hún er fyrir hendi eða ekki.
Tryggingin gildir á Íslandi.
Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.
Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.
Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.
Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.
Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:
Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.
Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.
Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.
Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.
Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.
Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.