Starfsábyrgðartrygging lækna bætir líkamstjón sjúklinga, sem læknir ber skaðabótaábyrgð á vegna mistaka við veitingu læknismeðferðar.
Hvað er tryggt? | Hvað er ekki tryggt? |
---|---|
Tryggingin greiðir bætur vegna: | Tryggingin greiðir ekki bætur vegna: |
Skaðabótakröfu á hendur lækni vegna líkamstjóns sem sjúklingur verður fyrir í tengslum við læknismeðferð sem hann veitir og kemur fram á gildistíma tryggingarinnar. | Tjóna af öðrum ástæðum en afleiðingum læknismeðferðar. |
Tjóna vegna meðferða sem vátryggður hefur ekki leyfi til að framkvæma. |
Tryggingin bætir ekki tjón sem felast í því að læknismeðferðin hafi ekki haft þau áhrif sem að var stefnt.
Tryggingin gildir á Íslandi.
Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.
Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.
Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.
Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.
Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:
Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.
Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.
Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.
Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.
Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.
Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.