Starfsábyrgðartrygging innheimtuaðila bætir fjártjón viðskiptavina eða annars þriðja aðila, sem innheimtuaðili ber skaðabótaábyrgð á vegna mistaka við veitingu sérfræðiþjónustu. Samkvæmt lögum um innheimtuleyfi nr. 95/2008 er innheimtuaðilum skylt að hafa starfsábyrgðartryggingu og er hún skilyrði fyrir starfsleyfi þeirra.
Hvað er tryggt? | Hvað er ekki tryggt? |
---|---|
Tryggingin greiðir bætur vegna: | Tryggingin greiðir ekki bætur vegna: |
Skaðabótakröfu á hendur innheimtuaðila vegna mistaka eða vanrækslu sem kemur fram á gildistíma tryggingarinnar. | Ábyrgðar sem er víðtækari en bótaskylda innheimtuaðila. |
Tryggingin greiðir ekki bætur vegna líkamstjóna eða skemmda á munum.
Tryggingin gildir á Íslandi.
Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.
Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.
Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.
Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.
Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:
Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.
Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.
Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.
Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.
Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.
Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.
Sjóvá ber að upplýsa stjórnvöld eða eftirlitsaðila um niðurfellingu lögboðinna starfsábyrgðartrygginga, enda eru þær skilyrði fyrir starfsleyfi viðkomandi starfsstéttar.