Upplýsingar um trygginguna

Hvers konar trygging er þetta?

Starfsábyrgðartrygging fasteignasala bætir fjártjón viðskiptavina eða annars þriðja aðila, sem fasteignasali ber skaðabótaábyrgð á vegna mistaka við veitingu sérfræðiþjónustu. Samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015 er fasteignasölum skylt að hafa starfsábyrgðartryggingu og er hún skilyrði fyrir starfsleyfi þeirra.

Sækja skilmála
Hvað er tryggt?
Hvað er ekki tryggt?
Tryggingin greiðir bætur vegna:Tryggingin greiðir ekki bætur vegna:

Skaðabótakröfu á hendur fasteignasala vegna mistaka eða vanrækslu sem kemur fram á gildistíma tryggingarinnar.

Tjóna sem verða í starfsemi utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Ábyrgðar sem er víðtækari en bótaskylda fasteignasala.

Eru einhverjar takmarkanir á því sem tryggingin nær yfir?

  • Tryggingin greiðir ekki bætur vegna líkamstjóna eða skemmda á munum.

Hvar gildir tryggingin?

  • Tryggingin gildir hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Hvaða skyldur hef ég?

  • Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.

  • Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.

  • Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.

  • Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.

Hvenær og hvernig greiði ég iðgjaldið?

Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:

  • Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.

  • Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.

  • Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.

Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?

  • Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.

Hvernig segi ég tryggingunni upp?

  • Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt trygging um upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.

  • Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.

  • Sjóvá ber að upplýsa stjórnvöld eða eftirlitsaðila um niðurfellingu lögboðinna starfsábyrgðartrygginga, enda eru þær skilyrði fyrir starfsleyfi viðkomandi starfsstéttar.