Húftrygging fiskiskipa er trygging fyrir skip, eðlilegt fylgifé þess, vistir og birgðir.
Hvað er tryggt? | Hvað er ekki tryggt? |
---|---|
Tryggingin greiðir bætur: | Tryggingin bætir ekki: |
Ef skipið skemmist af völdum skyndilegrar og óvæntrar óhappatilviljunar. | Skemmdir vegna efnis-, smíða- eða viðgerðargalla. |
Vegna kostnaðar við björgun samkvæmt ákvæðum siglingalaga. | Tjón sem stafar af því að skipið var óhaffært þegar það lét síðast úr höfn. |
Vegna altjóns, t.d. ef skipið ferst eða skemmist það mikið að ekki verður hægt að bjarga því eða gera við það. | Skaðabótakröfu frá eiganda eða útgerðarmanni. |
Til þriðja aðila (skaðabætur) ef árekstur verður vegna mistaka við stjórnun skipsins. | Sektir og refsiviðurlög. |
Tryggingin tekur ekki til fiskikassa, afla eða veiðarfæra.
Tryggingin gildir á meðan skip er í fiskveiðilandhelgi Íslands og ef skip fer ekki suður fyrir 40° norð- lægrar breiddar allt árið eða norður fyrir 70°norðlægrar breiddar á tímabilinu 16. nóvember til 15. maí.
Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.
Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.
Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.
Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.
Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:
Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.
Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.
Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.
Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.
Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.
Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.