Húftrygging fiskiskipa er trygging fyrir skip, eðlilegt fylgifé þess, vistir og birgðir.
Hvað er tryggt? | Hvað er ekki tryggt? |
---|---|
Tryggingin greiðir bætur: | Tryggingin bætir ekki: |
Altjóns, t.d. ef skipið ferst eða skemmist það mikið að ekki er hægt að bjarga því eða gera við það. | Skemmdir á hlutum sem efnis,- smíða- eða viðgerðargalli er á. |
Kostnaðar vegna skemmda á tilteknum varahlutum aðalvélar. | Tjón sem stafar af því að skipið var óhaffært þegar það lét úr höfn. |
Vegna innbrota og skemmdarverka sem falla á útgerðarmann samkvæmt íslenskum réttarreglum. | Kostnað við að hreinsa og mála botn skipsins. |
Vegna kostnaðar við björgun samkvæmt ákvæðum siglingalaga. | Skemmdir af ófullnægjandi viðhaldi, fúa, þreytu, tæringu eða sliti. |
Til þriðja aðila (skaðabætur) ef árekstur verður vegna mistaka við stjórn skipsins. | Skaðabótakröfu frá eiganda eða útgerðarmanni. |
Sektir og refsiviðurlög. |
Það er skilyrði fyrir bótaskyldu að siglingatæki, fjarskiptatæki, handfærarúllur og annar laus búnaður sé tekinn úr bátnum þegar hann er uppi á landi eða í höfn til lengri tíma.
Tryggingin gildir á meðan skip er í fiskveiðilandhelgi Ísland og á siglingu þess til og frá höfnum í Evrópu.
Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.
Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.
Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.
Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.
Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:
Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.
Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.
Fyrirtækjadreifingu, þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.
Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.
Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.
Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.