Víðtæk vernd fyrir lausafé um borð

Afla- og veiða­færa­trygging A

Mikilvægt er að lausafé, svo sem afli og veiðarfæri, sem ekki fellur undir húftryggingu skipsins sé tryggt sérstaklega.

Aðrir hagsmunir sem fallið geta undir trygginguna s.s. veiðarfæri, kostur, olía, smurolía, kassar og kör eru eingöngu vátryggð um borð í skipinu.Veiðarfæri eru aldrei vátryggð á meðan þau eru í sjó.

Upplýsingar um trygginguna

Hvers konar trygging er þetta?

Þessi trygging nær yfir afla og veiðafæri sem ekki falla undir húftryggingu bátsins og er seld sem viðbót við hana.

Sækja skilmála
Hvað er tryggt?
Hvað er ekki tryggt?
Tryggingin greiðir bætur vegna:Tryggingin bætir ekki:

Altjóns og hlutatjóns ef skipið strandar, sekkur, því hvolfir eða það lendir í árekstri.

Tjón af völdum kjarnorku, jónandi geislunar og geislavirkra efna.

Tjóns af völdum bruna.

Eru einhverjar takmarkanir á því sem tryggingin nær yfir?

  • Loðnu- og síldarnætur falla ekki undir afla- og veiðafæratryggingu en hægt er að tryggja þær sérstaklega í nótatryggingu.

Hvar gildir tryggingin?

  • Tryggingin gildir á sömu hafsvæðum og húftrygging skipsins nær til.

Hvaða skyldur hef ég?

  • Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.

  • Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.

  • Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.

  • Þér ber að fara eftir varúðarreglum í skilmálum.

Hvenær og hvernig greiði ég iðgjaldið?

Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú getur dreift greiðslum með:

  • Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.

  • Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.

  • Fyrirtækjadreifingu þar sem hægt er að greiða iðgjöld með mánaðarlegum greiðslum.

Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?

  • Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.

Hvernig segi ég tryggingunni upp?

  • Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.

  • Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.