Ef þú færð stein í framrúðuna og hún skemmist, aukast líkurnar á að hægt sé að gera við rúðuna þér að kostnaðarlausu ef þú setur framrúðuplásturinn strax á skemmdina.
Veldu ódýrari, fljótlegri og umhverfisvænni kost
- Þú færð framrúðuplástur ókeypis í útibúum okkar um land allt og á rúðuverkstæðum
- Sjóvá greiðir viðgerðina að fullu ef hægt er að gera við framrúðuna, þú sleppur við eigin áhættu og missir ekki árlega endurgreiðslu vegna tjónleysis ef þú ert í Stofni.
- Rúðuviðgerð tekur yfirleitt mun styttri tíma en rúðuskipti og er auk þess umhverfisvænni kostur.
Ef viðgerð er ekki möguleg og nauðsynlegt er að skipta um framrúðu greiðir þú 20% eigin áhættu af heildarkostnaði við rúðuskiptin.
Einfalt er að tilkynna tjón á vefnum hjá okkur, hvort sem er í síma eða tölvu.