Sjóvá-Almennar líftryggingar hf.

Sjóvá-Almennar líftryggingar er stærsta líftryggingafélag landsins.

Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. er dótturfélag Sjóvá-Almennra trygging hf. og eru höfuðstöðvar beggja félaga í Kringlunni 5 í Reykjavík. Útibú Sjóvár um allt land annast jafnramt þjónustu fyrir viðskiptavini og ráðgjöf um vátryggingar félagsins. Allri daglegri starfsemi líftryggingafélagsins er útvistað til Sjóvár.

Upplýsingar um líf- og sjúkdómatryggingar félagsins má nálgast hér.

Sjóvá-Almennar líftryggingar hf., sem fram til loka ársins 2003 hét Sameinaða líftryggingarfélagið hf. (Samlíf) var stofnað 1. maí 1985. Félagið á þó lengri sögu eða allt frá árinu 1934 þegar líftryggingastarfsemi hófst hér á landi með stofnun Líftryggingadeildar Sjóvár, sem í samræmi við lagabreytingu á árinu 1976 var breytt í hlutafélag undir heitinu Líftryggingarfélag Sjóvár.

Félagið varð til við sameiningu Líftryggingarfélags Sjóvár hf. og Líftryggingamiðstöðvarinnar hf.

Á árinu 1989 voru líftryggingarstofnar Almennra líftrygginga hf. og Líftryggingarfélagsisn Varðar hf. yfirfærðir til félagsins og hefur markaðshlutdeild félagsins verið 30% til 35% síðustu ár.

Stjórn

Varamenn í stjórn

Framkvæmdastjóri félagsins er Steinunn Guðjónsdóttir.