Loftþrýstingur
Réttur þrýstingur í dekkjum bílsins skiptir miklu máli og getur haft áhrif á aksturseiginleika bílsins og hversu gott er að stýra og bregðast við óvæntum uppákomum í umferðinni. Þess vegna þarf loft í dekkjum að vera rétt til þess að aksturseiginleikar bílsins séu sem bestir.
Hvernig veit ég hvað er réttur þrýstingur
Of mikið eða lítið loft slítur dekkjum og það getur valdið hættu við akstur. Algengt er að loftþrýstingur dekkja fólksbifreiða sé u.þ.b. 28-30 pund. Sami loftþrýstingur þarf að vera á dekkjum að framan og aftan (á sama áss). Upplýsingar um réttan loftþrýsting dekkja fyrir bílinn þinn er að finna í handbók bílsins og/eða á límmiða í hurðarfalsi. Svo er alltaf hægt að fá upplýsingar hjá dekkjaverkstæðum og aðstoð á bensínstöðvum. Gott er að mæla líka loftþrýstinginn í varadekkinu, það er aldrei að vita hvenær þarf að nota það.
Hvenær á að mæla loftþrýstinginn
Æskilegast er að mæla loftþrýsting dekkja þegar þú hefur ekki ekið bílnum langt og dekkin eru köld. Ástæðan er sú að loftþrýstingur dekkja eykst þegar þau eru orðin heit. Hversu oft á að mæla fer hins vegar eftir því hversu mikið þú ekur bílnum en ágæt regla er að skoða dekkin og slitið á þeim um leið og rykið er skolað af bílnum.
Hreinsaðu dekkin
Dekkin eru sá hluti bílsins sem ávallt er í snertingu við götuna. Í mynstursraufar dekkjanna festist tjara og óhreinindi af götunni sem mynda skán á dekkjum bílsins, þau verða sleipari og veggrip minnkar. Það skiptir því miklu máli að dekkin séu hrein, sérstaklega yfir veturinn. Gott er að nota dekkjahreinsi en ekki tjöruhreinsi því sumar gerðir innihalda sápu eða bón sem getur myndað skán á dekkjunum.