Lífið er dýrmætt en það verður ekki metið til fjár. Hugleiddu hvaða áhrif það hefur ef þú fellur frá. Hefur þú til dæmis fyrir öðrum að sjá eða ert með fjárhagslegar skuldbindingar? Ef svarið er já, þá þarft þú líftryggingu.
Líftrygging greiðir rétthöfum bætur ef líftryggður einstaklingur fellur frá af völdum slyss eða sjúkdóms. Hún greiðir líka bætur vegna andláts barns líftryggðs að átján ára aldri.
Þú ákveður hverjir skulu eiga rétt á bótum úr líftryggingunni þinni og gengur frá því þegar þú sækir um hana. Hægt er að velja nokkra möguleika á umsókn um líftryggingu:
Þú getur alltaf breytt tilnefningu rétthafa eftir að líftryggingin hefur tekið gildi. Það getur t.d. verið nauðsynlegt ef breytingar verða á fjölskylduhögum þínum.
Mögulegt er að tilnefna rétthafa með óafturkallanlegum hætti en afar sjaldgæft er að þörf sé á því. Aðeins er hægt að breyta slíkri tilnefningu seinna ef skráður rétthafi samþykkir breytinguna.
Iðgjald líftryggingar ræðst af þessum þáttum:
Það tekur bara 15 mínútur að sækja um líftryggingu á netinu. Þú getur hætt hvar sem er í umsóknarferlinu og komið aftur. Síðan klárar þú umsóknina með því að undirrita með rafrænum skilríkjum. Þú getur alltaf heyrt í okkur á netspjallinu ef þú hefur einhverjar spurningar.
Rafræn umsókn um líftrygginguViðskiptavinir sem nú þegar eru með líftryggingu í gildi geta nálgast skilmála tryggingarinnar á Mitt Sjóvá.
Opna Mitt Sjóvá