Það skiptir máli að bregðast rétt við þegar óhöpp verða. Á vefnum okkar er einfalt og öruggt að tilkynna hvers kyns tjón. Þannig getur þú brugðist við hvenær sem tjónið verður og afgreiðsla málsins hafist hratt og örugglega.
Á vefnum okkar getur þú tilkynnt öll algengustu tjón sem verða eins og t.d. farsímatjón, ökutækjatjón, tjón á fasteign vegna vatnsleka, slys á fólki, veikindi gæludýra o.fl.
Það er alltaf betra að tilkynna tjón á vefnum eins fljótt og mögulegt til þess koma málinu í farveg sem fyrst. Þannig getur þú brugðist fljótt við þegar óhappið verður og veitt ítarlegar upplýsingar um hvað gerðist, þar sem atburðurinn er þér enn í fersku minni. Það er einfalt að láta myndir eða önnur gögn fylgja með tjónstilkynningum á vefnum og æskilegt að gera það alltaf þegar við á. Vel útfyllt og ítarleg tilkynning flýtir fyrir afgreiðslu málsins.
Þegar þú hefur tilkynnt tjónið á vefnum færðu staðfestingu frá okkur í tölvupósti um að við höfum móttekið tjónstilkynninguna. Í kjölfarið hefst úrvinnsla málsins og við höfum samband við þig ef það vantar nánari upplýsingar um tjónsatburðinn.
Afgreiðslutími tjóna getur verið breytilegur eftir umfangi og eðli tjónsins, en við leggjum okkur fram við að afgreiða málið eins fljótt og auðið er. Venjulega tekur það nokkra virka daga, en í flóknari tilfellum gæti það tekið lengri tíma. Þú getur fylgst með stöðu málsins á Mitt Sjóvá.
Já, þú getur fengið aðstoð við að fylla út tjónstilkynningu á vefnum okkar. Ef þú þarft aðstoð skaltu ekki hika við að hafa samband við þjónustuver okkar í síma eða með netspjalli, og starfsfólk okkar mun leiðbeina þér skref fyrir skref.
Þú getur sótt um rafræn skilríki hjá þínum viðskiptabanka eða hjá Auðkenni. Við mælum hiklaust með því að þú sækir um rafræn skilríki og auðveldir þér þar með aðgang að þínum persónulegu upplýsingum á hinum ýmsu vefsíðum. Einnig er hægt að setja upp rafræn skilríki í gegnum app frá Auðkenni og þarf þá bara að vera með vegabréf við höndina.