Mikilvægt er að reyna að takmarka frekara tjón eins og kostur er, til dæmis að reyna að stöðva vatnsleka með því að skrúfa fyrir inntak vatns. Gætið þó fyrst og fremst að ykkar eigin öryggi.
Hægt er að hafa samband við Tjónavakt Sjóvá utan opnunartíma í síma4402424. Ef um neyðartilvik er að ræða og mikið liggur við hringdu í112.
Hægt er að fletta upp húsfélagi eftir kennitölu eða heimilisfangi.
Hvernig finn ég kennitöluna hjá húsfélaginu?
Einstaklingar ættu að geta nálgast kennitöluna hjá stjórn húsfélagsins.
Ef þú veist ekki kennitölu húsfélagsins er einnig hægt að fletta húsfélaginu upp eftir heimilisfangi í tilkynningarferlinu.
Hver eru næstu skref?
Þegar tjón hefur verið tilkynnt fer málið í vinnslu hjá tjónadeild og við sendum þér tölvupóst þar sem farið er yfir næstu skref.
Ef þörf er á að skoða aðstæður á vettvangi munum við hafa samband, bóka tjónaskoðun og í framhaldi komum við á staðinn eða hringjum í þig með myndsímtali í gegnum Innsýn Sjóvá.
Ef nauðsynlegt þykir að bregðast við tjóni strax, hafðu þá samband við okkur á eða í síma 440 2000 og við aðstoðum þig.
Utan opnunartíma bendum við á Tjónavakt Sjóvá í síma 440 2424.