Okkur finnst skipta miklu máli að taka þátt í samfélaginu.Um helgina gekk góður hópur vaskra einstaklinga upp Esjuna og myndaði síðan ljósafoss niður hlíðina. Þetta var gert til að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem Ljósið vinnur á hverjum degi með þeim sem eru í endurhæfingu í krabbameinsmeðferð og aðstandendur þeirra. Það var mikilfenglegt að fylgjast með því þegar höfuðljós hátt í 400 manns lýstu upp svart skammdegið og Esjuhlíðar á laugardaginn síðasta. Hraustmennin létu ekki smá rigningu og þokusudda á sig fá og var góða skapið með í för og ungir sem aldnir skemmtu sér vel í góðra vina hópi.
Sérstakar þakkir fá Þorsteinn Jakobsson sem leiddi gönguna og Björgunarsveitin Kjölur sem stóð vaktina og tryggði að öllsömul kæmust heil á húfi niður fjallið.Saman mynduðum við fallegan ljósafoss niður hlíðar Esjunnar og vöktum athygli á mikilvægi Ljóssins - sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk í krabbameinsmeðferð og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt.Sjóvá styrkir starfið um 1.000 kr. fyrir hvern sem lagði af stað í gönguna.