Til þess að við getum gefið út kaskótryggingu þarf að mynda ökutækið með eftirfarandi hætti:
- Myndir þurfa að vera skýrar og teknar við góð birtuskilyrði.
- Ökutækið þarf að vera hreint og allt ytra byrði þess sýnilegt.
- Myndir þurfa að vera teknar horn í horn svo framendi, afturendi og báðar hliðar séu sýnilegar. Bílnúmer þarf að vera sýnilegt á myndum þar sem möguleiki er á.
- Myndir þurfa að vera dagsettar þann dag sem trygging á að taka gildi eða auðkenndar með öðrum hætti svo hægt sé að sjá á hvaða degi þær eru teknar.
- Ef myndir sýna skemmdir eða annað tjón þarf að koma með ökutækið til skoðunar í næsta útibúi Sjóvá.
Kaskótryggingin tekur ekki gildi nema ökutækið sé óskemmt.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á skrifstofum okkar um land allt eða á aðalskrifstofu, Kringlunni 5, Reykjavík í síma 440-2000.