Það er mikilvægt að fara varlega um áramótin. Með því að nota flugeldagleraugu og gæta fyllsta öryggis þegar flugeldum er skotið upp getum við komið í veg fyrir óhöpp og slys.
Flugeldagleraugu er hægt að nálgast á flugeldamörkuðum björgunarsveitanna og í útibúum Sjóvár um land allt.
Við minnum einnig á að hægt er að styrkja öflugt starf björgunarsveitanna og styðja um leið við skógrækt í landinu með því að kaupa rótarskot.
Öryggisakademían hefur gefið út nokkur myndbönd sem minna á það sem hafa þarf í huga við meðferð flugelda. Slysavarnafélagið Landsbjörg og Sjóvá standa saman að Öryggisakademíunni en hlutverk hennar er að miðla öryggis- og forvarnaskilaboðum tengdum flugeldum til allra aldurshópa.
Sjóvá er stoltur aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hefur allt frá stofnun samtakanna átt við þau farsælt samstarf um forvarnir, öryggismál og vátryggingar.