Umhverfisvænn kostur

Raf­rænir reikningar

Sjóvá tekur eingöngu á móti reikningum með rafrænum hætti sem XML skeyti í gegnum skeytamiðlara. Það er ódýrara að senda reikninga rafrænt, móttaka reikninga er hraðari og öruggari og þá eru rafrænir reikningar umhverfisvænni kostur og styðja við sjálfbærni. Þið getið annað hvort sent okkur reikning í gegnum rafræna gátt hjá okkur eða sent rafrænt í gegnum ykkar reikningagerðakerfi.

Skil á rafrænum reikningum til Sjóvá

Mörg kerfi styðja rafræna reikninga og byrja þarf að setja slíkt upp. Þegar reikningur er skráður hér í gegnum gáttina á ekki að senda reikninginn samhliða á pappír, né með tölvupósti. Upprunareikninginn skal setja inn í skráningarformið sem viðhengi. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að senda reikning til Sjóvá með rafrænum hætti í gegnum skeytamiðlara.

Gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem tengjast í gegnum eigið reikningakerfi

Vefgátt rafrænna reikninga til Sjóvá

Sjóvá býður þeim sem ekki geta sent rafræna reikninga að skrá og senda reikninga í gegnum vefgátt hér:https://sjova-billing.unimaze.com/

Fyrir varanlegri lausnir þá höfum við höfum gott samstarf við Stólpi Viðskiptalausnir og Regla.is sem bjóða upp á einföld en öflug bókhaldskerfi sem senda rafræna reikninga samkvæmt nýjustu stöðlum.