Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. er dótturfélag Sjóvá-Almennra trygginga hf. og eru höfuðstöðvar beggja félaga í Kringlunni 5 í Reykjavík. Útibú Sjóvár um allt land annast jafnframt þjónustu fyrir viðskiptavini og ráðgjöf um vátryggingar félagsins. Allri daglegri starfsemi líftryggingafélagsins er útvistað til Sjóvár. Upplýsingar um líf- og sjúkdómatryggingar félagsins má nálgast hér.
Sjóvá-Almennar líftryggingar hf., sem fram til loka ársins 2003 hét Sameinaða líftryggingarfélagið hf. (Samlíf) var stofnað 1. maí 1985. Félagið á þó lengri sögu eða allt frá árinu 1934 þegar líftryggingastarfsemi hófst hér á landi með stofnun Líftryggingadeildar Sjóvár, sem í samræmi við lagabreytingu á árinu 1976 var breytt í hlutafélag undir heitinu Líftryggingarfélag Sjóvár.
Félagið varð til við sameiningu Líftryggingarfélags Sjóvár hf. og Líftryggingamiðstöðvarinnar hf.
Á árinu 1989 voru líftryggingarstofnar Almennra líftrygginga hf. og Líftryggingarfélagsins Varðar hf. yfirfærðir til félagsins og hefur markaðshlutdeild félagsins verið 30% til 35% síðustu ár