Sjálfbærni – Ábendingar og hugmyndir
Við viljum styðja við sjálfbærni með því að draga úr umhverfisáhrifum vegna starfseminnar, veita framúrskarandi þjónustu, og tryggja að þjónustan sé aðgengileg og í takt við þarfir og vilja viðskiptavina. Við viljum bjóða góðar starfsaðstæður og teljum starfsánægju vera mikilvæga forsendu ánægðra viðskiptavina. Sjóvá fylgir í hvívetna þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda og að stjórnarhættir séu í samræmi við leiðbeiningar.
Ef þú ert með góða hugmynd að verkefni sem Sjóvá getur framkvæmt og stuðlað getur að sjálfbærni? Til dæmis umhverfisvæn verkefni sem snúa að starfsfólki, viðskiptavinum og stjórnarháttum í víðu samhengi.
Hægt er að senda okkur ábendingar með því að smella hér eða í tölvupósti á sjalfbaerni@sjova.is.