Sjóvá hækkar um flokk í UFS sjálfbærnimati Reitunar
Reitun gaf nýlega út UFS sjálfbærnimat á Sjóvá sem fékk einkunnina B1 og 80 stig af 100 mögulegum sem telst góð einkunn. Félagið hækkar um tvö stig milli ára og fer upp um flokk úr B2 í B1. Meðaltal íslenska markaðarins stendur nú í 71 stigi af 100 mögulegum. Sjóvá mælist yfir meðaltali í öllum flokkum (umhverfisþættir, félagsþættir og stjórnarhættir) í samanburði við önnur félög sem metin hafa verið.
Sjóvá aðili að UN Global Compact
Sjóvá hefur gerst aðili að UN Global Compact sem eru samtök Sameinuðu þjóðanna um ábyrga viðskiptahætti og stærsta sjálfbærniframtak heims. Með aðild skuldbindur Sjóvá sig til að vinna að tíu meginmarkmiðum Global Compact um ábyrga viðskiptahætti á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála, umhverfismála og varna gegn spillingu.
Sjóvá Fyrirmyndarfyrirtæki 2024
Sjóvá er sjöunda árið í röð í 10 efstu sætum meðal stærri fyrirtækja og því Fyrirmyndarfyrirtæki 2024. Í ár fengum við þriðju hæstu einkunn sem við höfum fengið síðan mælingar hófust árið 2000.
Síldarvinnslan og Sjóvá undirrita samning um tryggingar
Gunnþór Ingvarsson forstjóri Síldarvinnslunnar og Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá undirrituðu í dag áframhaldandi samstarfssamning um tryggingar. Samningurinn felur í sér að Sjóvá tryggir starfsemi Síldarvinnslunnar, Vísis og tengdra félaga. Í samningnum er einnig lögð áhersla á áframhaldandi öflugt samstarf um forvarnir og öryggismál hjá umræddum fyrirtækjum.
Viska og Sjóvá tryggja háskólanema
Í vikunni undirrituðu Georg Brynjarsson framkvæmdastjóri Visku og Birgir Viðarsson framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar hjá Sjóvá samstarfssamning. Í samningnum felst að nú er snjalltrygging í samstarfi við Sjóvá hluti af námsmannaþjónustu Visku.
Hvers vegna greiða fyrirtæki út arð?
Um arðgreiðslur gilda skýr lög. Eftirlitsskyld fjármálafyrirtæki, eins og t.d. tryggingafélög, mega aðeins greiða út arð samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikningsárs og ef það dregur ekki úr rekstrarhæfi félagsins. Þá má arðgreiðsla heldur ekki hafa áhrif á getu félagsins til að mæta áföllum í rekstri. Gögnum sem staðfesta að þessi skilyrði séu uppfellt er reglulega skilað inn til Fjármálaeftirlitsins.
Hvað eru endurtryggingar?
Vátryggingar eru í eðli sínu áhættusamur rekstur, enda er hlutverk tryggingafélaga að bæta tjón viðskiptavina og erfitt að sjá fyrir hvenær tjón verður og þá hversu stór. Tryggingafélög reyna því eftir fremsta megni að draga úr sveiflum og áhættu í rekstri. Það er m.a. gert með því að kaupa svokallaðar endurtryggingar af stærri erlendum tryggingafélögum sem sérhæfa sig í að „tryggja tryggingafélög“.
Hvað er samsett hlutfall tryggingafélaga?
Samsett hlutfall er leið til að sýna í fljótu bragði hvernig rekstur vátryggingahluta tryggingafélags gengur. Í mjög einföldu máli er þetta hlutfall iðgjalda annars vegar og útgjalda vegna vátrygginga hins vegar. Markmiðið er að á hverju ári standi iðgjöld undir tjónagreiðslum og öðrum kostnaði félagsins.
Afþreying, farsímar og fylgihlutir
Vodafone býður viðskiptavinum í Stofni frábær tilboð á spennandi afþreyingarpökkum ásamt afslætti af símum aukahlutum og hlífum. 50% afsláttur í 6 mánuði af völdum afþreyingarpökkum, Stöð 2+ eða Sport í 1 mánuð til reynslu. 20% af hulstrum, 10% af aukahlutum, 5% af símtækjum.
Eldvarnir og öryggi
Eldvarnamiðstöðin veitir viðskiptavinum okkar í Stofni 20% afslátt af reykskynjurum, slökkvitækjum, eldvarnateppum, sjúkratöskum og fleiri öryggisvörum.
Opið hús hjá Sjóvá Egilsstöðum
Föstudaginn 8. júní kl. 10:00 - 14:00 verður opið hús í útibúi okkar á Egilsstöðum. Viðskiptavinir eru boðnir sérstaklega velkomnir þá að þiggja veitingar og glaðning. Við minnum á að það er líka alltaf heitt á könnunni hjá okkur á opnunartíma útibúsins, frá kl. 9:00 - 16:00 alla virka daga.
Hjólað í hóp
Fimmtudaginn 31. maí kl. 18:00-20:00 verður haldið hjólreiðanámskeið fyrir þá sem vilja læra að hjóla í hóp. Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir hvernig bendingar og ýmis önnur samskipti eru notuð þegar margir hjóla saman. Námskeiðið getur til dæmis nýst þeim vel sem ætla að taka þátt í hjólreiðakeppni í sumar.
Horft fram á veginn
Miðvikudaginn 23. maí 2018 klukkan 8:30-9:45 höldum við morgunfund um öryggi og forvarnir hjá bílaleigum. Á fundinum verður farið yfir hvað bílaleigur eru að gera í öryggismálum og hverju þarf að huga betur að í forvarnastarfinu.
Tryggingar og öryggi hjólreiðafólks
Hjólreiðar verða sífellt vinsælli hér á landi, eins og við sjáum bæði úti í umferðinni og eins á þeim mikla fjölda sem tekur þátt í hjólreiðakeppnum um allt land. Það er því mikilvægt að þeir sem stunda hjólreiðar kynni sér vel hvernig þeir geta tryggt sig og eins hvað þeir geta gert til að tryggja öryggi sitt og annarra í keppnum.
Morgunfundur um tryggingar og öryggi hjólreiðafólks
Fimmtudaginn 3. maí kl. 8:30-9:40 heldur Sjóvá morgunfund um tryggingar og öryggi hjólreiðafólks. Á fundinum verður farið yfir hvernig hjólreiðafólk tryggir sig og búnað sinn og að hverju þarf að huga þegar tekið er þátt í hjólreiðakeppnum. Fundurinn fer fram í húsnæði Sjóvár, Kringlunni 5 og eru allir velkomnir.