Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða miðvikudaginn 17. júlí nk.
Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 17. júlí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-2f-2024/.
Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is