Það mál sem bíður úrskurðar ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna málefna Sjóvár, snýst um það hvort stjórnvöld gátu tekið ákvörðun um að leggja nýju félagi, með sama nafni en með vátryggingastofni gamla félagsins, til fjármagn og hvort sú ákvörðun hafi verið tekin á réttmætan hátt. Niðurstaða liggur ekki fyrir.
Stjórnvöld hafa fært mjög sannfærandi rök fyrir ákvörðun sinni, enda talið hana mun betri kost en láta félagið fara í þrot.
Viðskiptavinir Sjóvár hafa enga ástæðu til að óttast um stöðu sína og þá tryggingavernd sem félagið býður þeim. Fjárhagsstaða félagsins er traust og gerir því kleift að standa fyllilega við allar skuldbindingar gagnvart viðskiptavinum óháð því hver niðurstaða ESA verður. Sjóvá lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins og uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til félagsins.
Nánari upplýsingar gefur:
Lárus S. Ásgeirsson forstjóri í síma 440-2000.