Í tengslum við Stofnendurgreiðsluna buðum við viðskiptavinum okkar í Stofni að taka þátt í leik. Þeir sem notuðu Mínar síður frá 4. febrúar til 25. mars áttu kost á því að taka þátt í leiknum og vinna iPad. Allir viðskiptavinir gátu tekið þátt hvort sem þeir fengu endurgreiðslu eða ekki. Dregið hefur verið í leiknum og vinningshafarnir eru:
- Guðrún Marsibil Jónasdóttir
- Kristján Ingi Þórðarson
- Dorota Oszkinis
Vinningshafarnir voru að vonum ánægðir með glaðninginn þegar við heimsóttum þau með vinningana. Við óskum þeim til hamingju með spjaldtölvurnar og þökkum þeim og öllum sem tóku þátt í leiknum kærlega fyrir þátttökuna.
Guðrún Marsibil Jónasdóttir og eiginmaður hennar Gísli Sumarliðason.
Kristján Ingi Þórðarson kampakátur með iPad spjaldtölvuna.
Dorota Oszkinis og Daria dóttir hennar.