Undanfarna daga og vikur hefur borið á endurteknum og villandi fullyrðingum um rekstur vátryggingafélaga, meðferð iðgjalda ökutækjatrygginga og meðferð eigin fjár tryggingafélaga þeirra. Í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið hefur sérstaklega fundið að því ef fyrirtæki á markaði svara ekki rangfærslum teljum við skylt að koma eftirfarandi á framfæri.
Rekstur vátryggingafélaga kallar á langtímahugsun. Þeim er ætlað að bæta tjón vátryggingarhafa og til að geta staðið við skuldbindingar sínar verða félögin að hafa fjárhagslega burði til þess. Tryggingafélög reyna að gæta þess að iðgjöld standi undir því tjóni sem verður á venjulegu ári. Stundum tekst það og stundum ekki, en markmiðið er að yfir lengri tíma litið sé jafnvægi þarna á milli.
Hvað varðar ökutækjatryggingar þá hefur afkoma af þeim sögulega verið slæm. Þess má geta að frá skráningu félagsins á markað hefur verið tap af lögboðnum ökutækjatryggingum. Iðgjöld taka mið af tjónakostnaði og í ökutækjatryggingjum vegur þyngst þróun launavísitölu því stór hlutur bóta fer í að bæta tekjutap einstaklinga sem lenda í umferðaslysum.
Iðgjöld hafa því vissulega hækkað, en greiðslur vegna tjóna hafa gert það líka. Síðustu 18 mánuði hefur Sjóvá greitt rúma 20 milljarða vegna tjóna viðskiptavina sinna. Það er því rangt að iðgjöld séu, eða hafi verið oftekin. Það er mjög villandi að horfa eingöngu á afkomu tryggingafélaganna árið 2020, þegar tjón voru í sögulegu lágmarki vegna Covid-19 faraldursins. Öflugt samkeppnisumhverfi á íslenskum tryggingamarkaði tryggir sanngjarna iðgjaldssetningu.
Sjóvá hefur aftur á móti lengi verðlaunað þá tryggingataka sem ekki lenda í tjóni með endurgreiðslu iðgjalda. Á síðustu átján mánuðum hefur Sjóvá endurgreitt sínum viðskiptavinum 2,1 milljarða í gegnum Stofnendurgreiðslu og með niðurfellingu iðgjalda ökutækja í maí 2020, en þá var fyrirséð að tjónum á ökutækjum myndi fækka verulega vegna samdráttar í umferð.
Hvað varðar tillögu stjórnar Sjóvár um hlutafjárlækkun er það að segja að ástæða hlutafjárlækkunarinnar er meðal annars sú að ekki var greiddur út arður til hluthafa á árinu 2020 í ljósi tilmæla eftirlitsaðila á þeim tíma. Þeir fjármunir sem lagt er til að ráðstafa til hluthafa nú eru hluti af eigin fé félagsins – þ.e. eignir sem eru umfram skuldbindingar félagsins, þar með talin tjónaskuld sem ætlað er að greiða tjónakostnað viðskiptavina félagsins og hefur ráðstöfunin engin áhrif á getu félagsins til að standast þær skuldbindingar.
Sjóvá er almennt hlutafélag á samkeppnismarkaði og lýtur auk þess eftirliti Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Ólíkt því sem haldið hefur verið fram er það skylda tryggingafélaga að búa yfir umframfjármagni til að hafa bolmagn til að standast lögbundnar kröfur um getu til að mæta áföllum í rekstri.