- Mokaðu frá niðurföllum og vertu viss um að þau séu ekki stífluð þar sem lauf, sandur og möl stíflar þau auðveldlega.
- Fjarlægðu snjóhengjur og grýlukerti til að koma í veg fyrir að þau falli ofan á gangandi vegfarndur eða bíla með tilheyrandi slysa- og tjónahættu.
- Hreinsið snjó frá hurðum og gluggum.
- Mokið snjó af svölum en vertu viss um að slasa ekki gangandi vegfarendur eða moka á bíla sem lagt er upp við húsið.
- Sumarhúsaeigendum er bent á að huga að vatnslögnum í bústöðum sínum. Þegar frost hefur verið í langan tíma er hætta á að vatn hafi frosið í leiðslum. Þegar snögglega hlýnar í veðri verður hætta á að vatn þenjist út og sprengi leiðslur með tilheyrandi vatnstjóni.
-
Eigendur húseigna sem ekki eru í notkun ættu jafnframt að huga að ástandi þeirra til að fyrirbyggja tjón.
-
Ef þú hyggur á ferðalög, kynntu þér veður og aðstæður til ferðalaga. Gakktu úr skugga um að ekki sé hætta á vatnsstjóni á meðan þú ert á ferðalagi.
-
Umsjónarmenn fasteigna og forvarsmenn fyrirtækja og stofnana þurfa einnig að huga að lofthitakerfum hjá sér. Í miklu frosti er hætt við að frjósi í hitablásurum í lofthitakerfum. Fyrir utan vatnstjón getur röskun á starfsemi orðið umtalsverð.
Veðurstofan hefur sent frá sér aðvörun vegna rigningar næstu daga. Það er ekki að ástæðulausu þar sem nú er mikill snjór á jörðu og því rétt að huga að því hvort gera þurfi ráðstafanir. Þú getur kynnt þér betur hér að neðan hvað er gott að hafa í huga.