Sjóvá og Vegagerðin hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að bæta tjón á ökutækjum, sem sannanlega má rekja til framangreindra blæðinga dagana 18. - 23. janúar sl. Eins og áður segir er ákvörðun þessi tekin þrátt fyrir að orsök blæðinganna liggi ekki nákvæmlega fyrir. Ákvörðunin byggir á því að Vegagerðin hefði í þessu tilviki mögulega mátt bregðast fyrr við þeim aðstæðum sem voru uppi.
Vegfarendum, sem orðið hafa fyrir tjóni á ökutækjum sínum af völdum þessara blæðinga á áðurnefndu tímabili, er bent á að hafa samband við Sjóvá og fylla út tjónaskýrslu. Nánari upplýsingar eða aðstoð er hægt að nálgast hjá þjónustuveri Sjóvár í síma 440 2000.
Jafnframt býður Vegagerðin ökumönnum verulega óhreinna ökutækja af völdum tjörunnar að fá beiðni fyrir þrifum á næstu starfsstöð Vegagerðarinnar. Nánari upplýsingar um hvar starfstöðvar er að finna gefur Vegagerðin í síma 522-1000.
Sjóvá hvetur ökumenn til þess að gæta fyllstu varúðar og haga akstri ávallt í samræmi við aðstæður hverju sinni.