Með tilkynningu þessari er óskað eftir því að vátryggingartakar, vátryggðir og aðrir sem sérstakra hagsmuna hafa að gæta við flutning vátryggingastofns Sjóvár-Almennra trygginga hf. í barnatryggingum yfir til Sjóvár-Almennra líftrygginga hf., komi skriflegum athugasemdum sínum á framfæri við Fjármálaeftirlitið innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningar þessarar.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur sent umsókn til Fjármálaeftirlitsins þar sem óskað er eftir að félaginu verði veitt heimild til að flytja vátryggingastofn félagsins í barnatryggingum til Sjóvár-Almennra líftrygginga hf. Við flutning stofnsins mun Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. yfirtaka öll réttindi og skyldur sem stofninum fylgja.