Þórunn Snorradóttir hefur tekið við starfi útibússtjóra hjá Sjóvá á Ísafirði af Torfa Einarssyni, sem hefur stýrt útibúinu frá stofnun þess. Þórunn hefur líkt og Torfi starfað hjá Sjóvá um árabil, lengst af sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði. Hún þekkir sérstaklega vel til starfsemi sem tengist sjávarútveginum og situr meðal annars í sjávarútvegsteymi fyrirtækisins.
„Mér finnst mjög spennandi að vera komin aftur hingað vestur en ég hóf einmitt starf mitt hjá Sjóvá í þessu útibúi,“ segir Þórunn. „Hér eru mörg tækifæri í atvinnulífinu, flest tengd sjávarútvegnum sem ég hef mikinn áhuga á. Þannig er til dæmis mikil nýsköpun í sjávarútveginum sem færir enn meira líf í strandbyggðir landsins. Fiskurinn er nú nýttur að fullu og roðið sem við hentum áður er jafnvel orðið hvað verðmætast. Ég hlakka því mikið til þeirra spennandi tíma sem eru framundan og að halda áfram að veita góðum viðskiptavinahóp Sjóvár á Ísafirði frábæra þjónustu.“
Þórunn hefur starfað hjá Sjóvá frá árinu 2000. Hún er með diplóma í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi við Tryggingaskólann þar. Þórunn leggur nú stund á nám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst. Hún er gift Jóni Ágústi Björnssyni vélstjóra og eiga þau tvö börn.
Svæðisútibú Sjóvá við Silfurtorg á Ísafirði þjónustar einstaklinga og fyrirtæki á öllum Vestfjörðum. Útibúið hefur verið starfrækt frá árinu 2000 og þar starfa 4 manns.