SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu og Sjóvá hafa undirritað samstarfssamning. Með samningnum mun Sjóvá bjóða þeim fyrirtækjum sem eru aðilar að SVÞ sérkjör á líf- og sjúkdómatryggingum ásamt hóplíftryggingasamningum sem eru sérsniðnir fyrir aðildarfyrirtæki SVÞ.
Markmið SVÞ með samningnum er að auka virði aðildar að samtökunum með því að bjóða aðildarfyrirtækjum með markvissum hætti sérkjör og sérsniðnar lausnir á sviði líf- og sjúkdómatrygginga. Markmið Sjóvá er að bæta þjónustu við viðskiptavini sína með einföldum en sérsniðnum líftryggingalausnum.
Nánari upplýsingar um samstarfið veita Þorvaldur I. Birgisson hjá Sjóvá og Óskar Björnsson hjá SVÞ-Samtökum verslunar og þjónustu.