Í vikunni komu 15 starfsmenn Bláa Lónsins á námskeið hjá Sjóvá um akstur og hæfni ökumanna. Margir starfsmanna Bláa Lónsins aka Reykjanesbrautina daglega og eru á fyrirtækisbílum. Það eru því miklir hagsmunir fólgnir í því að gera hvað hægt er til þess að koma í veg fyrir slys og tjón.