VÍB hélt opinn fund í Hörpu um skráningu Sjóvár í kauphöll NASDAQ OMX Iceland. Um 150 manns sóttu fundinn. Þeir sem ekki höfðu tök á að vera á staðnum geta séð upptöku frá fundinum á vef VÍB.
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár kynnti félagið og með honum í panel sátu:
- Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá
- Ólafur Njáll Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sjóvá
- Fanney Birna Jónsdóttir, fréttastjóri viðskiptafrétta hjá 365 miðlum og ritstjóri Markaðarins
- Hrafn Árnason, forstöðumaður stýringar eigna hjá Íslandssjóðum
- Fundinum stýrði Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri fræðslu og viðskiptaþróunar VÍB.
Lýsingu og fjárfestakynningu má nálgast hér.
VÍB veitir allar nánari upplýsingar um útboðið í síma 440-4900 eða í vib@vib.is.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Hermann Björnsson, Ólaf Njál Sigurðsson og Þórð Pálsson sitja fyrir svörum á fundinum.