Sjóvá hlaut tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2014, annars vegar fyrir bestu markaðsherferðina og hins vegar fyrir frumlegasta vefinn. Um sama vefinn er að ræða í báðum tilnefningunum hlaupafelagi.kvennahlaup.is en þar gátu konur fundið sinn hlaupafélaga meðal vinna sinna á Facebook.
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða, eins og segir á vef SVEF.
Vefverðlaunin verða afhent 30. janúar næstkomandi í Gamla Bíó.