Subaru á Íslandi og BL Atvinnubílar afhentu Sjóvá nú í vikunni þrjá nýja Subaro Solterra bíla til afnota. Það er tjónadeild Sjóvá sem kemur til með að nota bílana.
Þeir eru alrafmagnaðir og fjórhjóladrifnir og eiga eftir að nýtast afar vel bæði innanbæjar og við akstur við þær krefjandi íslensku aðstæður sem við þekkjum vel.
Tjónadeildin hefur lengi notað Subaru, enda henta þeir vel fyrir mikinn akstur við síbreytilegar íslenskar aðstæður árið um kring.