Sjóvá tekur þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni, sem nú er haldin í tíunda sinn. Sjóvá er leiðandi í þjónustu við allar tegundir fyrirtækja sem starfa í sjávarútvegi og leggur mikinn metnað í að bjóða upp á tryggingalausnir sem henta fyrirtækjum á hinum ýmsu stöðum í ferli sjávarafurða frá því fiskurinn er dreginn að landi þar til hann er kominn á borð neytanda, hér heima og erlendis.