Nýlega undirrituðum við langtíma styrktarsamning við Andreu Kolbeinsdóttur, margfaldan Íslandsmethafa í langhlaupi. Við vitum að það er erfitt fyrir afreksíþróttafólk að láta drauma sína rætast og ná að þjálfa eins og þau vilja og vonum að þetta geri henni auðveldara fyrir.
Með þessum styrktarsamningi viljum við styðja við bakið á Andreu á meðan hún einbeitir sér að hlaupaþjálfun sinni, en um þessar mundir dvelst hún í Frakklandi þar sem hún býr sig undir maraþonið í Valencia í desember.
Vertu velkomin í hópinn, Andrea!