Fimmtudaginn 8. desember sl. var hátíðarsamvera starfsmanna Sjóvár og fjölskyldna þeirra haldin í Háteigskirkju og er þetta er í fjórða sinn sem samveran er haldin. Söngsystur Sjóvá og Drengjakór félagsins buðu uppá lauflétta söngdagskrá með fallegum jólalögum. Sérstakur gestur í ár var Andrea Gylfadóttir söngkona, sem söng jólalög eins og henni einni er lagið.