Í ár mun Sjóvá ekki senda viðskiptavinum sínum hefðbundin jólakort. Við það sparast umtalsverð upphæð og var ákveðið að nota þá fjármuni til að veita Fjölskylduhjálp Íslands aðstoð. Fimmtudaginn 10. desember var árleg hátíðarstund starfsmanna Sjóvár í Háteigskirkju. Við það tækifæri færði Lárus Ásgeirsson forstjóri Sjóvár Fjölskylduhjálpinni styrk að upphæð 200.000 krónur.