Rannsóknastofa Sálfræðistofnunar Háskóla Íslands í atferlisgreiningu og Sjóvá hafa endurnýjað samstarfssamning um að fækka og koma í veg fyrir slys á börnum í innkaupakerrum með því að setja upp viðvörunarmerkingar í innkaupakerrur verslana.
Hættuleg slys á börnum
Árlega slasast fjöldi barna í slysum tengdum innkaupakerrum. Þessi slys og meiðsli sem af þeim hljótast geta verið allt frá því að klemma fingur eða útlimi yfir í fall úr kerru sem getur haft í för með sér alvarlega höfuð- og hálsáverka. Mikilvægt er því að koma í veg fyrir að foreldrar og aðrir uppalendur setji börn ofan í innkaupakerrur.
Forvarnaverkefni byggt á rannsóknarniðurstöðum
Árið 2010 hóf Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, PhD, prófessor í atferlisgreiningu og atferlismeðferð við sálfræðideild Háskóla Íslands og stofustjóri Rannsóknastofu í atferlisgreiningu, rannsókn til að kanna áhrif þess að koma sérstökum viðvörunarspjöldum fyrir í innkaupakerrum matvöruverslana á hegðun foreldra. Markmiðið var að vekja fólk til vitundar um þá hættu sem börnum stafar af þvi að vera laus í innkaupakerrum stórverslana. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að mun færri foreldrar settu börn sín í kerrurnar þegar spjaldið var í þeim en á samanburðartímabilum. Einfalt sjónrænt áreiti sem komið er fyrir á innkaupakerrum getur því dregið verulega úr því að börn séu sett ofan í innkaupakerrur. Þetta vakti athygli Sjóvár og gerður var samstarfssamningur í apríl 2014. Í kjölfarið voru frekari rannsóknir unnar og mismunandi þættir skoðaðir. Nú hefur samningurinn verið uppfærður og endurnýjaður.
Mikilvægt samstarf
Niðurstöðurnar hafa vakið athygli á alþjóðavísu og fela í sér mikilvæga þekkingu til að efla forvarnir í slysavörnum barna. Sjóvá styrkir verkefnið og er í samstarfi við Rannsóknastofu í atferlisgreiningu með að gera samninga við þær verslanir sem taka þátt í verkefninu. Samstarfsaðilar vinna síðan saman að því að kynna verkefnið og var verkefnið meðal annars kynnt á ráðstefnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar síðastliðið haust, Slysavarnir 2021. Það er von okkar að verkefnið stuðli að árvekni foreldra og annarra umönnunaraðila þannig að koma megi í veg fyrir slys á börnum í matvöruverslunum. Augnabliks kæruleysi getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar og því er til mikils að vinna að koma í veg fyrir að börn séu sett ofan í innkaupakerrur.