Sjóvá og Fram hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að Sjóvá verður aðalbakhjarl og samstarfsaðili knattspyrnufélagsins Fram næstu þrjú árin. Samningurinn er gerður við allar deildir félagsins og nær til allra aldursflokka sem munu bera merki Sjóvá á búningum sínum á samningstímanum.