UFS áhættumat Reitunar á frammistöðu Sjóvár á sviði sjálfbærni liggur nú fyrir og fékk Sjóvá einkunnina B2 og 78 stig af 100 mögulegum sem telst góð einkunn.
Meðaltal íslenska markaðarins stendur nú í 72 stigum af 100 mögulegum hjá þeim félögum sem Reitun hefur tekið út.
Sjóvá mælist yfir meðaltali í umhverfis- og félagsþáttum og er á pari við meðaltal í stjórnarháttum í samanburði við önnur félög sem metin hafa verið. Samantekt matsins og nánari upplýsingar má nálgast hér.
Matið gerir grein fyrir hvernig fyrirtæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum. UFS (e. ESG) mat er framkvæmt fyrir hönd fjárfesta á útgefendum verðbréfa sem nýta matið til að veita félögum í eignasöfnum sínum aðhald og ýta undir framþróun á þessum sviðum.