Frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið fyrir rúmum 30 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrsta hlaupið fór fram árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ og var markmiðið með hlaupinu að hvetja konur til að gefa sér tíma fyrir sig, hreyfa sig meira og huga að heilsu sinni. Þessi tilteknu markmið hafa sannarlega náðst á síðustu árum og gott betur.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ hefur sameinað samveru og hreyfingu kvenna á landsvísu með farsælum árangri. Kvennahlaupið hefur verið nýtt til að minna á mikilvægi þess að allir hreyfi sig á sínum forsendum, samstöðu og ánægjulega samverustund á hlaupadag. Hlaupið hefur verið árviss viðburður hjá mörg þúsund manns um allt land, sem og erlendis. Það er fyrst og fremst þátttakendum og þeim fjölmörgu framkvæmdaraðilum sem hafa haldið utan um hlaupið að þakka að árangurinn hefur orðið eins góður og raun ber vitni.
Allt hefur sinn tíma og í ljósi þess að tíðarandinn hefur breyst frá því hlaupið var fyrst haldið og upphaflegum markmiðum þess hefur verið náð hefur nú verið tekin ákvörðun um að leggja hlaupið niður.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Sjóvá þakka framkvæmdaraðilum og þeim fjölmörgu sem hafa tekið þátt í hlaupinu í gegnum tíðina kærlega fyrir samfylgdina og virka þátttöku þeirra í að efla heilsu kvenna og samstöðu.
Um leið eru landsmenn hvattir til reglubundinnar hreyfingar og hlúa vel að líkamlegri og andlegri heilsu, til dæmis með því að taka þátt í þeim fjölmörgu skipulögðu hlaupum sem í dag eru í boði um allt land. Munum að öll hreyfing skiptir máli.
Við göngum sátt og stolt frá verkefninu og munum áfram vinna ötullega að því að jafna möguleika allra einstaklinga á landinu til heilsu og hreyfingar. Áframhaldandi vinna í þá átt verður byggð á grunni þess glæsilega árangurs sem samstilltar konur hafa unnið í nafni hlaupsins í meira en þrjá áratugi, konur sem létu ekkert stoppa sig og efldu markvisst lýðheilsu íslenskra kvenna.