Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og fyrsta sinn, í dag, laugardaginn 19. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu. Um 15.500 konur tóku þátt á 94 stöðum út um allt land og á um 18 stöðum erlendis. Um 6000 konur hlupu í Garðabænum sem er um 500 fleiri en í fyrra, 1300 í Mosfellsbæ, 650 á Akureyri og um 460 konur erlendis, sem eru fjölgun frá því í fyrra. Boðið var upp á mismunandi vegalengdir allt frá 2 km upp í 21 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman.