Þann 22. ágúst hlaut Sjóvá, ásamt öðrum, viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndar fyrirtæki í góðum stjórnarháttum.
Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn á Nauthóli, að viðstöddum fulltrúum fyrirmyndarfyrirtækjanna en það eru Stjórnvísi, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland sem veita viðurkenningarnar.
Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.
Á viðurkenningarathöfninni hélt Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands, stutt erindi þar sem hún spurði fundargesti hvort við sem heild værum til fyrirmyndar þegar kemur að tækifærum kynjanna til stjórnunarstarfa. Í máli hennar kom meðal annars fram að þó svo að Ísland leiði lista Alþjóðaefnahagsráðsins er snýr að kynjajafnrétti, 14 árið í röð og hafi fengið gullvottun frá Sameinuðu þjóðunum árið 2022 sem viðurkenningu á hlutverki Íslands sem leiðandi ríki í jafnréttisbaráttu, þá væri staðan óásættanleg þegar kemur að stöðu kvenna í framkvæmdastjórastöðum og stjórnum hér á landi. Almennt eru konur einungis 21 % allra framkvæmdastjóra hér á landi en karlmenn 79% og hjá skráðum félögum væru konur 13% forstjóra.
Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá og Ingunn Agnes Kro veittu viðurkenningunni móttöku.
Þegar litið væri til stjórna allra félaga væru konur fjórðungur stjórnarmanna en um 44% hjá skráðum félögum og þar er það kynjakvótinn sem hefur áhrif. Ásta Dís velti því upp hverjir það væru sem gætu breytt stöðunni hér á landi og nefndi fjölmörg dæmi í því samhengi. T.d væru það stjórnvöld sem m.a. gætu farið þá leið að setja á kynjakvóta á framkvæmdastjórnir félaga, fjárfestar gætu sett ákvæði í eigendastefnu sína. Atvinnulífið gæti einnig lagt sitt af mörkum til að breyta stöðunni og þar þyrftu leiðtogar stærstu félaganna og samtakanna að vera öflugir talsmenn jafnréttis. Síðast en ekki síst gætu stjórnir félaga komið á menningu jafnra tækifæra og innleitt arftakaáætlanir í félög. Ásta Dís lauk máli sínu á því að jafnrétti er ákvörðun og til þess þarf að hafa öflugar fyrirmyndir líkt og þau sem fengu viðurkenninguna á viðburðinum.
Jón Gunnar Borgþórsson frá JGB ráðgjöf fór því næst stuttlega yfir verkefnið Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum sem sett var á laggirnar fyrir rúmum áratug. Markmið verkefnisins er að stuðla að góðum stjórnarháttum með því að skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja og auðvelda þeim þannig að rækja störf sín.
Það voru svo Gunnlaugur B. Björnsson samskiptastjóri Viðskiptaráðs og Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi, sem afhentu viðurkenningarnar en fundarstjóri var Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.