Það veitir okkur mikla ánægju að sjá hvað viðskiptavinir okkar hafa brugðist vel við þeim breytingum á þjónustu sem við höfum ráðist í síðustu ár.
Árið 2015 breyttum við áherslum okkar. Við einfölduðum skilaboð og jukum frumkvæði í samskiptum við okkar viðskiptavini. Í grunninn reyndum við einfaldlega að setja tryggingar á mannamál.
Við bættum framsetninguna á öllu okkar efni, endurskrifuðum hluta skilmála og vefsíðunnar og reyndum að útrýma öllu tæknimáli.
Tryggingafélög | 2018 | 2017 | 2016 |
Sjóvá | 69,8 | 66,77 | 67,76 |
-
Nú sést hversu þessi vinna hefur skilað, en Sjóvá er efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni annað árið í röð, með hæstu einkunn sem tryggingafélag hefur fengið síðustu þrjú ár.
Aukningin á milli ára er áberandi, en Sjóvá hækkar um heila 3 í einkunn viðskiptavina sinna.