Aukin sókn fyrirhuguð á erlenda markaði með öflugan íslenskan markað sem undirstöðu.Sjóvá og Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður, hafa keypt ráðandi hlut í 66°Norður-Sjóklæðagerðinni hf, og var Glitnir ráðgjafi kaupenda í kaupferlinu og sá um fjármögunun þá sem til þurfti. Samningur um kaupin var undirritaður í gær.
Sigurjón Sighvatsson hefur verið hluthafi í 66°Norður um nokkurt skeið og fylgst með framþróum og uppbyggingu fyrirtækisins. Áhugi hans á 66°Norður kviknaði árið 1996 er hann átti sæti í stjórn bandaríska undirfataframleiðandans Joe Boxer. „Það ár komum við með tískusýningu hingað til lands og áttum gott samstarf við 66°Norður. Síðan hef ég fylgst náið með fyrirtækinu og fyrir nokkru keypti ég lítinn hlut í því. Þróunin leiddi svo til þess að ég gerði eigendum tilboð sem þeir tóku,“ segir Sigurjón Sighvatsson.
Ekki eru áformaðar neinar stórbreytingar á rekstrarfyrirkomulagi fyrirtækisins nema að nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn í stað Þórarins Elmars Jensen og ný stjórn verður kjörin og verður Sigurjón Sighvatsson stjórnarformaður. Þórarinn keypti rekstur 66°Norður árið 1966 og hefur rekið fyrirtækið til dagsins í dag. Tilkynnt verður um nýjan forstjóra á næstu dögum.
66°Norður hefur starfað í nær 80 ár og alltaf náð að aðlagast nýjum og breyttum tímum. Í dag starfa þar yfir 200 manns bæði hér á landi og erlendis. Stærstur hluti af framleiðslu 66°Norður fer fram í verksmiðju fyrirtækisins í Saldus í Lettlandi þar sem í dag starfa um 150 manns. Nýlega hafa verið fest kaup á annari verksmiðju í Aizpute í Lettlandi sem mun taka til starfa nú í Janúarlok. Ráðgert er að þar starfi um 100 manns í vibót, thegar sú verksmiðja nær fullum afköstum um mitt ár 2006.
Á Íslandi starfa um 65 manns við fyrirtækið en aðalstöðvarnar eru við Miðhrauni 11 í Garðabæ. Fyrirtækið rekur fimm eigin búðir í Reykjavik, Garðabæ og á Akureyri, auk útsölumarkaðar í Reykjavík. Auk þess eru umboðsverslanir á þremur stöðum á landsbyggðinni og umboðsmenn víðsvegar um landið.
Velta 66°Norður er áætluð um 1200 milljónir króna árið 2005. Staða fyrirtækisins er mjög sterk á markaði hérlendis en auk þess hefur 66°Norður verið í útrás erlendis undanfarið. Fyrirspurnir um vörur fyrirtækisins hafa borist frá fjölmörgum löndum og mikill áhugi er á vörunni um allan heim.
Þórarinn Elmar Jensen segist mjög ánægður með kaupendurna. „Fyrirtækið verður íslenskt áfram eins og verið hefur. Þeir taka við góðu fyrirtæki og getur gert sér góðar vonir um að það haldi sér á markaði. Fyrirtækið hefur gengið vel, er með góða hönnun og gott starfsfólk hvort sem er hér heima eða erlendis. Það er langvarandi þekking innan fyrirtækisins, það hefur góða og langa ímynd á íslenskum markaði og undanfarin fjörgur ár höfum við jafnframt starfað erlendis. Við höfum lagt áherslu á vandvirkni og gæði sem er stór hluti þess að vera lifandi á þessum markaði. Það verður að lifa á góðri ímynd sem skapast af miklum gæðum,“ segir Þórarinn Elmar Jensen, fyrrum eigandi og forstjóri 66°Norður.
Stefnt er á að auka hlut 66°Norður á erlendum markaði verulega, en þó ekki þannig að það bitni á starfseminni hér á landi. „Útrásin byggist á því að vel séð hlúð að íslenska markaðnum. Rætur 66°Norður eru hér á Íslandi og munu ekki tínast. Kjarninn í sögu og þróun 66°Norður er Ísland, þetta er íslensk vara þróuð við íslenskar aðstæður með gæðin að leiðarljósi. Fyrirtækið er þegar komið í útrás erlendis og reynsla mín að hafa starfað erlendis og unnið í erlendu umhverfi og byggt upp í fleiri löndum hjálpar til,“ segir Sigurjón.
Sigurjón telur öruggt að 66°Norður muni tengjast kvikmyndaiðnaðinum en varan hefur m.a. sést í sjónvarpsþáttaröðinni Amazing Race. „Á næstunni er ég að fara að framleiða kvikmynd sem öll á að gerast í Alaska og þar verður að sjálfsögðu tenging við 66°Norður,“ Segir Sigurjón Sighvatsson, nýr eigandi 66°Norður.