Afkoma Sjóvár 2014
Afkoma
- Hagnaður af rekstri Sjóvár árið 2014 var 1.029 m.kr. (0,65 kr. á hlut) samanborið við 1.790 m.kr. hagnað á sama tíma árið áður (1,12 kr. á hlut)
- Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 1.698 m.kr. (2013: 2.610 m.kr.)
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi nam 1.472 m.kr. (2013: 1.354 m.kr.)
- Fjárfestingatekjur 1.297 m.kr. (2013: 2.191 m.kr.)
- Tap af fjárfestingarstarfsemi nam 246 m.kr. (2013: 792 m.kr. hagnaður)
Hlutföll
- Samsett hlutfall samstæðunnar var 95,1% (2013: 94,7%)
- Tjónahlutfall var 69,0% (2013: 65,1%)
- Kostnaðarhlutfall var 23,6% (2013: 25,0%)
- Endurtryggingahlutfall var 2,5% (2013: 4,6%)
Efnahagur
- Í lok árs nam eigið fé 17.810 m.kr. (2013: 16.781 m.kr.)
- Fjárfestingareignir námu 33.946 m.kr. (2013: 30.010 m.kr.)
- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 40,2% (2013: 39,3% m.kr.)
- Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 5,9% (2013: 11,9%)
- Gjaldþolshlutfall móðurfélagsins var 4,27 eftir áætlaða arðgreiðslu, (fyrir arðgreiðslu: 6,03)
Afkoma Sjóvár á fjórða ársfjórðungi 2014
Afkoma
- Hagnaður af rekstri Sjóvár á fjórða ársfjórðungi 2014 var 614 m.kr. (0,39 kr. á hlut) samanborið við 96 m.kr. hagnað á sama tíma árið áður (0,06 kr. á hlut)
- Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 819 m.kr. en (4F 2013: 126 m.kr.)
- Hagnaður af vátryggingastarfsemi nam 510 m.kr. (4F 2013: 276 m.kr. tap)
- Hagnaður af fjárfestingastarfsemi nam 207 m.kr. (4F 2013: 296 m.kr.)
Hlutföll
- Samsett hlutfall samstæðunnar var 91,0% (4F 2013: 100,6%)
- Tjónahlutfall var 65,4% (4F 2013: 66,4%)
- Kostnaðarhlutfall var 21,1% (4F 2013: 30,1%)
- Endurtryggingahlutfall var 4,5% (4F 2013: 4,1%)
Hermann Björnsson, forstjóri
„Góður hagnaður var af vátryggingarekstri Sjóvár og aukning frá fyrra ári. Ávöxtun fjárfestinga var undir væntingum þar sem fjárfestingartekjur drógust saman um 900 m.kr. á milli ára.
Sjóvá er enn að styrkjast bæði í eignum og iðgjöldum og vaxa eigin iðgjöld um 6,3% milli ára. Eigið fé samstæðunnar í árslok nam 17.810 m.kr. en enginn arður hefur verið greiddur til hluthafa undanfarin fimm ár.
Tjónatíðnin hefur aukist nokkuð en hún var innan þeirra eðlilegu sveiflna sem ávallt má vænta í tryggingum. Einstök stærri tjón og tjón vegna veðurfars og vondrar færðar hafa þar töluverð áhrif, sér í lagi á síðustu vikum ársins. Þrátt fyrir þessa aukningu er tjónahlutfallið sögulega lágt eða 69%. Kostnaður félagsins vegna ökutækjatjóna hefur vaxið og verður áfram fylgst grannt með þeirri þróun.
Markmið um vöxt á fyrirtækjamarkaði og í persónutryggingum gengu eftir á árinu. Það er ánægjulegt að vöxtur félagsins hefur sérstaklega verið í starfsgreinum sem notið hafa velgengni á Íslandi þ.e. í sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Markmið um lækkun kostnaðar gengu eftir þrátt fyrir kostnað við skráningu Sjóvár á hlutabréfamarkað og kjarasamningsbundnar hækkanir á árinu. Í ljósi sterkrar eiginfjárstöðu mun stjórn félagsins leggja til við aðalfund að greiddur verði út 4 milljarða króna arður til hluthafa auk þess sem sótt verður heimild til endurkaupa á eigin hlutum. Eftir arðgreiðslu hefur félagið enn sterka eiginfjárstöðu með 4,27 í gjaldþol“, segir Hermann.
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is.