Stuðningur fyrirtækjanna sem mynda Ólympíufjölskyldu ÍSÍ er afar mikilvægur en fyrirtækin koma á ýmsan hátt að verkefnum ÍSÍ, bæði almenningsíþróttaverkefnum og afreksíþróttastarfi.
Sjóvá hefur verið í miklu samstarfi við ÍSÍ í mörg ár og verið hluti af Ólympíufjölskyldunni frá byrjun.
Meðfylgjandi mynd er tekin við undirritun samninganna en á henni má sjá, frá vinstri, Líneyju Rut Halldórsdóttur framkvæmdastjóra ÍSÍ, Viðar Þorkelsson forstjóra Valitor, Jón Guðna Ómarsson fjármálastjóra Íslandsbanka, Þorvarður Guðlaugsson svæðisstjóri hjá Icelandair, Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá og Lárus L. Blöndal forseta ÍSÍ.