Markmið Kvennahlaupsins frá upphafi er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar, ekki aðeins þennan eina dag heldur sem flesta daga ársins. Heimasíða Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ er á sjova.is og þar má finna allar upplýsingar um hlaupið og myndir frá hlaupinu, sem fram fór laugardaginn 7. Júní, ásamt myndum frá eldri hlaupum. Á næsta ári verður tuttugasta Kvennahlaup ÍSÍ haldið.
Á myndinni hér til hliðar er Ingibjörg Bergrós Jóhannsdóttir, formaður kvennahlaupsnefndar ÍSÍ og Auður Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri tjónasviðs, að undirrita samninginn á kvennahlaupsdaginn, 7.júní í Garðabæ.