- Slysavarnafélagið Landsbjörg setur sér markmið um víðtæka dreifingu hér á landi og erlendis
Hinn margreyndi björgunarbúnaður, Björgvinsbeltið svokallaða, sem upprunalega var hannað fyrir rúmum tveimur áratugum af sjómanni í Vestmannaeyjum, hefur verið endurhannað með tilliti til nútímakrafna í björgunarmálum og hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg fengið einkaleyfi á sölu þess á öllum Norðurlöndunum og Bretlandseyjum. Fyrsta nýja Björgvinsbelið var í gær afhent Bjarna Sighvatssyni, útgerðarmanni í Vestmannaeyjum, við hátíðlega athöfn í Eyjum í tilefni sjómannadagsins.
Björgvin Sigurjónsson, stýrimaður og skipstjóri í Vestmannaeyjum, bjó til fyrsta beltið fyrir rúmum 20 árum og hefur beltið margsannað gildi sitt við björgun mannslífa. Það þykir einstaklega traust og einfalt í notkun, sem er afar mikilvægur kostur við björgun, og hlaut beltið á sínum afar góðar viðtökur hjá útgerðarfélögum landsins. Nýja Björgvinsbeltið er framleitt úr enn sterkara og veðurþolnara efni en fyrirrennari þess auk þess sem á beltið hefur verið bætt endurskinsmerkjum, ljósi og flautu, m.a. í þeim tilgangi að auðvelda leit og björgun í myrkri.
Sjóvá fjármagnaði endurhönnun beltisins f.h. Landsbjargar, sem hefur sett sér það markmið að dreifa sem flestum nýjum Björgvinsbeltum um borð í skip og báta auk fleiri staða, svo sem við brýr og aðra staði, þar sem nauðsyn er að hafa björgunarbúnað við hendina.
Öllum ágóða af sölu nýja Björgvinsbeltisins verður varið til rekstrar björgunarskipa Landsbjargar en þau eru fjórtán talsins. Skipin eru staðsett þar sem slysahætta er talin mest vegna sjósóknar og á hverju ári aðstoða þau hátt í hundrað skip og báta við Íslandsstrendur.
Björgvinsbelti er ekki ósvipað því sem notað er við hífingar með þyrlum. Því fylgja kastlínur, það flýtur og hægt er að bjarga tveimur mönnum með því í einu beri svo undir. Þá er hægt að kasta Björgvinsbeltinu lengra og af meiri nákvæmni en bjarghring. Ekki er þó ætlast til að Björgvinsbeltið komi í staðinn fyrir annan björgunarbúnað, heldur sem viðbótarbúnaður um borð í skipum, við hafnir og á fleiri stöðum.
Nánari upplýsingar um Björgvinsbeltið gefa Guðmundur Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í síma 862 0537, og Sigurjón Andrésson, markaðsstjóri Sjóvár, í síma 844 2022.
Frá kynningu á nýju Björgvinsbelti í Vestmannaeyjum. Frá vinstri: Sigurjón Andrésson forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Sjóvá, Sigurður Bragason útibússtjóri Sjóvár í Vestmannaeyjum, Óskar Jónsson meðframleiðandi Björgvinsbeltisins, Björgvin Sigurjónsson hönnuður Björgvinsbeltisins, Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Páll Ágúst Ásgeirsson formaður bátasjóðs Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Myndir
Smelltu á mynd til að stækka